Innlent

Björgunarsveitir fylgja skemmtibáti í land

BBI skrifar
Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út í dag þegar menn á skemmtibáti lentu í vandræðum skammt frá Kjalarnesi. Þrír menn voru á bátnum og áttu við gangtruflanir í vél að stríða. Bátur frá björgunarsveitunum var sendur út til móts við bátinn rétt fyrir klukkan fimm í dag. Honum var svo fylgt í land.

Einnig voru björgunarsveitir kallaðar að Helgafelli um fimmleytið í dag þar sem kona hafði handleggsbrotnað. Þyrla var send á svæðið og konan var flutt til aðhlynningar á sjúkrahúsi.

Nokkur útköll voru einnig á landsbyggðinni um helgina. Í Hveragerði var björgunarsveit kölluð út til aðstoðar konu sem komst ekki af sjálfsdáðum niður úr gönguferð í Gufudal. Í morgun var Björgunarfélag Hornafjarðar kallað út vegna rútu með 30 manns innanborðs sem hafði festst í sandi við Stokknesvita




Fleiri fréttir

Sjá meira


×