Kynferðisbrotamál í kerfinu tvöfalt fleiri 20. janúar 2012 08:30 Bragi Guðbrandsson
Gríðarleg breyting hefur orðið á meðferð kynferðisbrota gegn börnum frá því fyrir fimmtán árum. Tvöfalt fleiri mál koma til kasta kerfisins og þrefalt fleiri mál rata til ákæruvaldsins. Bæði um vitundarvakningu og fleiri mál að ræða. Kynferðisbrotamál gegn börnum sem fjallað hefur verið um innan velferðar- og réttargæslukerfisins eru tvöfalt fleiri nú en á árunum 1995 til 1997 samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Barnaverndarstofu. Árin 1995 til 1997 voru 369 mál sem vörðuðu kynferðisbrot gegn börnum stödd einhvers staðar í kerfinu. Árin 2006 til 2008 voru þau 740 en það eru nýjustu tölur sem hægt er að styðjast við. Að mati Braga Guðbrandsson, forstjóra Barnaverndarstofu, bendir allt til þess að síðan hafi málafjöldi verið svipaður. „Nú erum við í rauninni miklu betur stödd. Við höfum heildarsýn yfir þetta, það er ein af ánægjulegustu breytingunum frá fyrra tímabilinu til hins seinna,“ segir Bragi. Á fyrra tímabilinu höfðu barnaverndarnefndir aðeins vitneskju um 75 prósent þessara mála, önnur mál voru til meðferðar hjá lögreglu eða annars staðar án vitundar barnaverndaryfirvalda. „Nú hefur orðið sú breyting að þessi 740 mál voru öll til meðferðar í barnaverndarkerfinu. Það hefur úrslitaþýðingu um að börnin fái viðeigandi aðstoð og meðferð. Það skiptir máli að barnaverndarkerfið sé meðvitað um öll mál, og það er búið að tryggja í dag.“ Á fyrra tímabilinu, 1995 til 1997, voru 170 af 369 málum til rannsóknar hjá lögreglu. 146 mál fóru áfram til ákæruvaldsins, sem gaf út ákæru í 51 máli. Á seinna tímabilinu, 2006 til 2008, komust 340 mál inn á borð lögreglu. Þar af fóru 315 til meðferðar ákæruvaldsins, og ákærur voru gefnar út í 155 málum. „Ákærurnar höfðu þrefaldast á seinna tímabilinu, þrefalt fleiri mál fóru í dómskerfið.“ Á fyrra þriggja ára tímabilinu var sakfellt í 49 málum en á seinna tímabilinu voru sakfellingar 108. „Ég held að við séum eina landið í Evrópu þar sem er svona góð heildarsýn yfir fjölda mála,“ segir Bragi. Hann segir þó að tölurnar veki að sumu leyti upp fleiri spurningar en þær svari. „Spurningin er sú hvort samfélagsvitundin hafi bara aukist, við séum orðin meðvitaðri og kerfið betur undir það búið að glíma við þessi mál, eða hvort um raunverulega aukningu þessara mála er að ræða.“ Bragi segist telja að fyrst og fremst sé þetta vegna kerfisbreytinga með tilkomu Barnahúss og þeirrar vinnu sem þar á sér stað. „En ég held líka að það megi færa rök fyrir því að umfang þessara brota hafi raunverulega aukist líka. Í rauninni eiga báðar skýringar við þó að sú fyrri sé í mínum huga hugsanlega þýðingarmeiri.“ Bragi mun halda erindi á ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota í HÍ í dag. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Sjá meira