Innlent

Íslenskir rithöfundar kepptust um athygli á Crimefest

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir eru stödd á Crimefest.
Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir eru stödd á Crimefest.
Íslendingar eiga tvo fulltrúa á alþjóðlegu glæpasagnaráðstefnunni Crimefest þetta árið, eins og kom fram í Fréttablaðinu í vikunni. Það eru þau Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson. Ráðstefnuna sækja um fjögur hundruð rithöfundar, lesendur, útgefendur og gagnrýnendur. Metsölubók Yrsu, Ég man þig, er væntanleg í Bretlandi á næstunni, en sú bók keppir jafnframt um Glerlykilinn fyrir Íslands hönd þetta árið. Nýjasta bók Ragnars, Myrknætti, var nýverið seld til þýska útgáfurisans Fischer Verlage.

„Við Yrsa lentum nú eiginlega í því að þurfa að keppa um gesti í dag," segir Ragnar Jónasson í léttum dúr í samtali við Vísi. Svo óheppilega vildi til að pallborðsumræður Yrsu um siðferðileg álitamál í glæpasögum voru settar á sama tíma í dagskrána og pallborðsumræður Ragnars um skandinavískar glæpasögur. Allt fór þó vel að lokum því báðir atburðirnir voru vel sóttir. Yrsa hafði fyrr um daginn jafnframt tekið þátt í umræðum um löggur, einkaspæjara og lögmenn.

Þau Ragnar og Yrsa hafa þó einnig fengið tækifæri til að standa saman í keppni við aðra rithöfunda því á fimmtudagskvöld kepptu þau í spurningakeppni ráðstefnunnar og lið þeirra náði fimmta sæti. „Það verður reyndar að viðurkennast að við vorum með tvo mjög sterka erlenda gesti í íslenska liðinu okkar," segir Ragnar. Hann tekur þó fram að erlendu gestirnir hafi ekki átt svar við einni erfiðustu spurningu kvöldins: Hvernig er nafn aðalpersónunnar í bókum Yrsu Sigurðardóttur stafað. Yrsa fékk sjálf að svara þeirri spurningu fyrir hönd liðsins.

Ráðstefnan er haldin á gömlu og glæsilegu hóteli í Bristol sem Ragnar segir að gæti vel átt heima í bók eftir Agöthu Christie. Á meðal heimskunnra rithöfunda sem þar eru staddir eru P.D. James, Lee Child og Frederick Forsyth.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×