Býr til skart úr smáhlutum 17. september 2012 10:00 Salka Þorra Svanhvítardóttir býr til skemmtilegt skart úr smáhlutum og selur á Facebook. fréttablaðið/stefán F63140912
Salka Þorra Svanhvítardóttir býr til skemmtilegt og einstakt skart undir heitinu Salkasvan og selur á samskiptavefnum Facebook. Salka er aðeins fjórtán ára gömul en segist hafa saumað og skapað með ömmu sinni frá tveggja ára aldri. "Ég hef alltaf haft gaman af því að sauma og föndra. Amma mín er saumakona og ég hef saumað með henni síðan ég var tveggja ára gömul. Ég heimsæki hana alltaf á sunnudögum og einn daginn fann ég pínulitlar dúkkur heima hjá henni og datt í hug að það gæti verið flott að búa til eyrnalokka úr þeim," útskýrir Salka sem segist föndra skart úr hvers kyns smáhlutum. Sjálf getur hún ekki notað eyrnalokka og því datt henni í hug að mynda lokkana og setja á Facebook ef vera skyldi að öðrum litist á þá. "Ég get ekki notað eyrnalokka en hélt kannski að annað fólk gæti viljað þetta. Ég hef selt þrjú pör hingað til." Salka er fjórtán ára gömul og í 9. bekk í grunnskóla. Hún er dóttir Svanhvítar Tryggvadóttur hárgreiðslukonu og stjúpdóttir Georgs Hólm tónlistarmanns. Aðspurð segist hún gjarnan vilja læra einhvers konar hönnun í framtíðinni. "Ég hef rosalega gaman af tísku og hönnun og myndi annað hvort vilja læra fata- eða skartgripahönnun, ég hef mest gaman af því." Innt eftir því hvort hún eigi sér önnur áhugamál en hönnun svarar hún játandi: "Ég hangi mest með vinum mínum en hef líka gaman af því að teikna." Þeir sem hafa áhuga á að skoða skartið hennar Sölku er bent á síðuna Salkasvan á Facebook. - sm
Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Við erum öll nóg“ Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Fleiri fréttir Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Sjá meira