Innlent

Svifdrekamaður brotlenti

Hafrafell. Úr safni.
Hafrafell. Úr safni. mynd/vilhelm
Svifdrekamaður brotlenti í Hafrafelli um klukkan tvö í dag og eru fyrstu björgunarsveitarmenn og sjúkraflutningamenn komnir á vettvang. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg virðist maðurinn vera fótbrotinn. Hafrafellið er bratt og því þarf að setja manninn í börur og tryggja hann niður með fjalllínum til að síga honum niður þar sem sjúkrabíll bíður. Ekki er vitað meira um málið að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×