Innlent

Tom Cruise á leið til landsins

Kvikmyndastjarnan Tom Cruise dvelur á Íslandi í nokkrar vikur nú í júní og júlí við tökur á Hollywood-myndinni Oblivion. Á fréttavefnum dfs.is segir að tvö hundruð manna tökulið fylgi leikarnum til landsins en myndin verður meðal annars tekin upp á svæðinu á Jökulheimaleið á Suðurlandi.

Þann 3. júlí mun Cruise svo halda upp á fimmtugsafmælið sitt hér á landi og er talið að margar frægar Hollywood-stjörnur komi í veisluna þar á meðal eru hjónin David og Victoria Beckham og Will og Jada Pinkett-Smith.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×