Innlent

Frumvarp um Vaðlaheiðargöng afgreitt í nefnd

Alþingi samþykkti síðdegis í dag að vísa frumvarpi um fjármögnun Vaðlaheiðarganga í nefnd, en þrjátíu og einn þingmaður samþykkti frumvarpið í atkvæðagreiðslu.

Það fer nú aftur til fjárlaganefndar og síðan til þriðju umræðu. Frumvarpið snýst um það hvort að fjármálaráðherra fái heimild til að ábyrgjast 8,7 milljarða króna lán vegna ganganna.

Vaðlaheiðargöngin eru eitt þeirra mála sem stjórnin lagði áherslu á að klára fyrir þinglok en eins og staðan er núna eru yfirgnæfandi líkur á að sumarþing hefjist 2. júlí. Ekki hefur náðst samkomulag á fundum í dag um þinglokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×