Breið sátt nauðsynleg eigi áætlun að halda 12. mars 2012 04:00 Deilt er um það innan ríkisstjórnarflokkanna hvernig flokka skuli virkjanakosti í Þjórsá. Fréttablaðið/Anton
Engin forsenda er fyrir því að sátt náist um rammaáætlun um verndun og nýtingu vatnsafls og jarðvarma ef ekki verður farið eftir faglegri niðurstöðu verkefnisstjórnar, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Gústaf segir nauðsynlegt að ná breiðri sátt um rammaáætlunina eigi hún að vera stefnumótun til lengri tíma frekar en áætlun núverandi ríkisstjórnar. Eins og Fréttablaðið greindi frá á laugardag veldur rammaáætlunin enn deilum innan ríkisstjórnarflokkanna. Meðal annars er deilt um hvort stefnt skuli að því að leyfa virkjanir í neðri hluta Þjórsár eða setja þær í biðflokk. „Rammaáætlun verður alltaf pólitísk en ef nást á breið sátt um hana er það okkar mat að hún þurfi að byggja á skýrslu verkefnisstjórnarinnar,“ segir Gústaf. „Ef vikið verður langt frá niðurstöðunum verður þetta orðin rammaáætlun núverandi ríkisstjórnar.“ Verði það niðurstaðan er líkegt að þegar ný ríkisstjórn kemst til valda dusti hún rykið af tillögum verkefnisstjórnarinnar og breyti rammaáætluninni, segir Gústaf. Hann viðurkennir að ekki hafi öll orkufyrirtæki verið sátt við niðurstöður verkefnisstjórnarinnar, en skýrslan hafi verið faglega unnin og Samorka hafi fagnað henni. Gústaf bendir á að miðað við fréttir úr herbúðum ríkisstjórnarinnar bendi margt til þess að í rammaáætlun verði aðeins þrjár mögulegar vatnsaflsvirkjanir í nýtingarflokki, sem sé miður. Rammaáætlunin gæti því allt eins heitið rammaáætlun um jarðhitavirkjanir.- bj
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Fleiri fréttir Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Sjá meira