Innlent

Rólegra á skjálftasvæðinu - óvissustig enn í gildi

Siglufjörður
Siglufjörður
Nokkuð rólegra var á skjálftasvæðinu út af Norðurlandi í gærkvöldi og í nótt. Síðasti skjálfti sem náði þremur stigum var rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi en fyrir utan hann hefur enginn skjálfti mælst stærri en þrjú stig síðan á fimmtudagsmorgun. Skjálftarnir eiga flestir upptök sín vestan megin á skjálftasvæðinu nær Siglufirði þar sem stóri skjálftinn varð fyrir tæpri viku síðan. Vísindamenn veðurstofunnar fylgjast náið með þróuninni í samstarfi við Almannavarnir og er óvissustig enn í gildi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×