Dregur á vindi á Vestfjörðum - Rafmagn komið á Ísafjörð 30. desember 2012 09:29 Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Töluvert hefur dregið úr vindi á Vestfjarðakjálkanum frá því í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu er lítil ofankoma á Vestfjörðum en talsverður skafrenningur og kóf. Hið sama má segja um Norðurland vestra. Þá segir að vegna snjóflóðahættu er lokað á Vestfjörðum um Súðavíkurhlíð, Eyrarhlíð, Botnsdal, Breiðadal og Flateyrarveg en á Norðurlandi bæði um Siglufjarðarveg og Ólafsfjarðarmúla. Á Kjalarnesi má reikna með vindhviðum 30-35 m/s fram á miðjan daginn. Rafmagn er annars komið á Ísafjörð. Þó hefur ekki verið hægt að koma rafmagni á lítið svæði í kringum fyrrum sorpbrennslustöðina Funa vegna bilunar sem talin er vera á Arnardalslínu sem tengist spennistöðinni í Funa. Báðar díselvélarnar á Ísafirði eru í gangi ásamt Tungudalsvirkjun og virkjun Dalsorku í Súgandafirði. Varaaflsvélar eru líka í gangi í Bolungarvík og sjá þær Hnífsdal fyrir rafmagni. Varaaflsvélar eru einnig keyrðar í Súðavík, Suðureyri, Flateyri, Patreksfirði og á Bíldudal. Barðastrandarlína er biluð og er því ekki rafmagn á bæjum þar í kring. Bilun er einnig á sveitalínu í Dýrafirði. Ekki hefur verið hægt að koma rafmagni á sveitir í Önundarfirði. Tálknafjarðarlína, Breiðadalslína 1 og Mjólkárlína 1 eru bilaðar og því er ekki hægt að koma rafmagni frá Mjólkárvirkjun. Bilanaleit mun hefjast strax og veður leyfir. Geiradalslína, sem liggur milli Glerárskóga og Geiradals, er biluð og stendur bilanaleit yfir. Ólafsvíkurlína, sem liggur frá Vegamótum að Ólafsvík, er biluð en um er að ræða brotna stæðu. Verið er að flytja viðgerðarefni á bilanastað og mun viðgerð hefjast í fyrramálið. Varaaflsvélar eru í gangi í Ólafsvík. Vegna rafmagnstruflana á Vestfjörðum hafa orðið truflanir á fjarskiptum og eru GSM sendar á nokkrum stöðum sambandslausir. Sambandslaust er í GSM á Ströndum frá Drangsnesi, Hólmavík og suður fyrir Bitrufjörð. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands mun veðrið ganga hægt niður. Áfram má búast við stormi með éljum og snjókomu vel fram eftir degi og hvassviðri í kvöld. Á Kjalarnesi má reikna með vinhviðum þrjátíu til þrjátíu og fimm metrum á sekúndu. Allhvasst verður á morgun.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Sjá meira