Innlent

Gunnar ekki hættur í Krossinum

Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumaður Krossins.
Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumaður Krossins.
Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumaður Krossins, hefur ekki yfirgefið söfnuðinn líkt og fram kom í frétt Vísis í gær. Í færslu sem Jónína Ben, eiginkona Gunnars, birti á Facebook kom fram að hún hefði hætt í Krossinum en sú ályktun var dregin af skrifum hennar að Gunnar hefði einnig sagt skilið við söfnuðinn.

„Ég er ekki hættur í Krossinum," sagði Gunnar í samtali við Vísi. „Þetta var rangtúlkun blaðamanns." Hjónin vildu ekki tjá sig frekar um málið en Jónína staðfesti að hún hefði sannarlega yfirgefið söfnuðinn. Enn fremur vilja þau ekki tjá sig um persónuleg málefni á opinberum vettvangi.

„Ég hef sagt mig úr Krossinu," skrifaði Jónína á Facebook. „Gunnar minn hefur endanlega verið sigraður í þeirri kirkju sem hann byggði upp og það af sömu öflum og reyndu að knésetja hann þegar við giftum okkur."

Þá skrifaði Jónína einnig: „Gunnar minn er brotinn vegna þeirrar árásar sem á hann eru lagðar endalaust. En hann er fastur í trúnni og neitar að gefast upp. Guð launi ykkur. Ég hef sannfærst um að lítið er sameiginlegt með trú og kirkjum í dag. Valdabröltið og illmælgi ráða þar ríkjum, í Krossinum sem og annars staðar."

„Kirkja á að vera opin öllu fólki en oftstæki ræður nú ríkjum í Krossinum, eina ferðina enn. Það er stórhættulegt veikum sálum. Leitt að þurfa að skrifa þetta hér en fjölmiðillinn minn er Facebook."

Pistill Jónínu hefur nú verið fjarlægður af Facebook.


Tengdar fréttir

Jónína og Gunnar hætt í Krossinum

Gunnar Þorsteinsson og eiginkona hans, Jónína Ben, eru hætt í Krossinum. Þetta kemur fram á Fésbókarsíðu Jónínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×