Innlent

Stálu díselolíu fyrir 65 þúsund krónur

Mynd/Vísir.
Tvö hundrað og sextíu lítrum af díselolíu var stolið af tveimur flutningabílum á Suðurnesjum um helgina. Að sögn lögreglu var olíunni stolið um nótt en á vettvangi var lítill olíubrúsi og slanga sem þjófarnir notuðu við þjófnaðinn. Ef við gerum ráð fyrir því að líterinn af dísel kosti 248 krónur, eins og algengast er í dag, þá stálu þjófarnir olíu fyrir tæpar 65 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×