Innlent

Ástþór verður ekki í framboði til forseta

Ástþór Magnússon.
Ástþór Magnússon.
Framboð Ástþórs Magnússonar er ekki metið gilt og því verður hann ekki í framboði til embættis forseta Íslands þann 30. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu sem var að berast. Ráðuneytið telur, að í ljósi þess að ekki liggi fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftarlistum til stuðnings Ástþóri, séu ekki uppfyllt ákvæði laga um framboð og kjör forseta. „Því verður framboð Ástþórs Magnússonar Wium ekki metið gilt."

„Í samræmi við 4. gr. laga um framboð og kjör forseta Íslands hafa einnig verið afgreidd til  Hæstaréttar Íslands skjöl er varða ofangreind framboð, þ.e. samþykki forsetaefnis, nægileg tala meðmælenda og vottorð yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningarbærir,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

„Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis upplýsti Ástþór Magnússon Wium og innanríkisráðuneytið 25. maí 2012 að allar forsendur væru brostnar fyrir útgáfu vottorðs gildra meðmæla úr Vestfirðingafjórðungi sem kjörstjórnin hafði gefið út til hans 22. maí 2012,“ segir ennfremur. „Yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis, Reykjavíkurkjördæmis suður og Reykjavíkurkjördæmis norður gáfu út vottorð með fyrirvara um gildi undirskrifta meðmælenda með framboði hans. Yfirkjörstjórnir Suðurkjördæmis og Suðvesturkjördæmis vottuðu meðmælendalista Ástþórs án athugasemda.“

Forsetaframbjóðendur eru:

Andrea Jóhanna Ólafsdóttir, Skildinganesi 4, Reykjavík

Ari Trausti Guðmundsson, Fannafold 132, Reykjavík

Hannes Bjarnason, Bjarnastöðum, Akrahreppi

Herdís Þorgeirsdóttir, Hávallagötu 9, Reykjavík

Ólafur Ragnar Grímsson, Bessastöðum, Sveitarfélaginu Álftanesi

Þóra Arnórsdóttir, Hjallabraut 66, Hafnarfirði




Fleiri fréttir

Sjá meira


×