Innlent

Missti alsælu úr leggöngunum í Leifsstöð

Tæplega þrítug kona situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hún reyndi að smygla nær hálfu kílói af fíkniefnum í leggöngum sínum til landsins. Í tilkynningu frá lögreglu segir að konan, sem er af erlendu bergi brotin, hafi verið að koma frá Kaupmannahöfn og vaknaði grunur um að hún væri með fíkniefni í fórum sínum við hefðbundið eftirlit tollgæslu.

„Þegar farið var að ræða nánar við hana „missti" hún á fimmta hundrað grömm af extacy-dufti niður úr leggöngum sínum. Lögreglan á Suðurnesjum var þá kvödd í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þar sem konan hafði „misst" efnin og var hún handtekin og færð á lögreglustöð. Hún var skömmu síðar úrskurðuð í gæsluvarðhald," að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×