Innlent

Fyrrum leikmaður Stjörnunnar skotinn í höfuðið

Keith Cothran spilaði með Stjörnunni í vetur og skoraði 17,3 stig að meðaltali fyrir félagið.
Keith Cothran spilaði með Stjörnunni í vetur og skoraði 17,3 stig að meðaltali fyrir félagið.
Keith Cothran, fyrrum leikmaður Stjörnunnar í körfuknattleik, var skotinn í höfuðið á bílastæði í Connecticut í Bandaríkjunum á miðvikudagskvöld. Cothran lék með Stjörnunni á síðasta keppnistímabili.

Cothran sat einn í bíl sínum þegar hann var skotinn nokkrum sinnum. Hann náði þó að staulast á bensínstöð sem var hinum megin við götuna, er haft eftir lögreglumanni í bænum Hamden. Ekki hefur verið greint frá líðan hans, að því er segir í frétt um málið á vefsíðu New Haven Register.

Lögreglan rannsakar málið og er meðal annars að yfirheyra vitni.

Cothran lék 29 leiki með Stjörnunni í vetur og skoraði að meðaltali 17,3 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×