Ástþór ánægður að óvissunni sé eytt - vill lögregluna í málið 1. júní 2012 12:45 Ástþór fær ekki að bjóða sig fram í forsetakosningunum. „
Ég hef ekki hugmynd um hvað býr þarna að baki," segir Ástþór Magnússon, fyrrum forsetaframbjóðandi. Innanríkisráðuneytið telur, að í ljósi þess að ekki liggi fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftarlistum til stuðnings Ástþóri, séu ekki uppfyllt ákvæði laga um framboð og kjör forseta. Hann verður því ekki með í kosningunum í lok þessa mánaðar. „Þetta er að afhjúpa stóran galla í kosningakerfinu, þetta er ógilt vegna þess að ein kjörstjórn dregur til baka vottorð sem hún var búin að gefa á lista. Það sýnir að þeir hafa vottað lista án fyrirvara og undirstrikar að það er opin leið fyrir þá sem vilja ógilda framboð," segir Ástþór. Í samtali við fréttastofu segir Ástþór að eðlilegast sé að lögreglan rannsaki málið. „Það hefur komið í ljós að þeir hafa vottað lista sem voru ekki í lagi - mér finnst að lögreglan verði að kalla á manninn sem gerði það og leita skýringa. Það þarf að rannsaka þetta." Þó að hann fái ekki að bjóða sig fram segist hann vera nokkuð spakur. „Mér líður miklu betur að óvissunni sé eytt, það er verst að þurfa að vera í óvissu með þetta," segir hann. Og hann er ekki farinn að spá í það hvern hann ætlar að kjósa. „Nei, ég hef ekki íhugað það ennþá. Það er nú bara þannig að þessar kosningar eru leynilegar kosningar. Það er réttur fólks að fá að halda því fyrir sjálfan sig," segir hann.
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira