ESB-flokkar í stjórnarmyndunarviðræður 15. september 2012 03:00 Mark Rutte forsætisráðherra og Frjálslyndi flokkurinn unnu óvæntan sigur í þingkosningunum í Hollandi. Hann mun að öllum líkindum reyna að mynda stjórn með Verkamannaflokknum. Fréttablaðið/AP
Frjálslyndi flokkurinn og Verkamannaflokkurinn munu á næstu dögum hefja stjórnarmyndunarviðræður eftir góða útkomu í þingkosningunum í Hollandi í vikunni. Flokkarnir hlutu samtals 79 þingsæti af 150, en þó gæti farið svo að þeir tækju þriðja flokkinn inn í viðræðurnar til að styrkja meirihlutann, en flokkarnir tveir eru ekki með meirihluta í öldungadeild þingsins. Úrslit þingkosninganna þykja vera sigur fyrir ESB-sinna þar í landi þar sem flokkarnir tveir sem bættu við sig mestu fylgi höfðu lýst sig fylgjandi björgunaraðgerðum fyrir evrusvæðið. Árangur frjálslyndra vakti sérstaka athygli, en þeir bæta við sig tíu þingsætum frá síðustu kosningum þrátt fyrir að hafa síðustu misseri farið fyrir ríkisstjórn sem hefur þurft að grípa til óvinsælla aðhaldsaðgerða. Þá tapaði Frelsisflokkur hins umdeilda Geert Wilders níu sætum og verður nú með 15 sæti. Wilders hafði talað fyrir því að Holland segði sig úr myntbandalaginu, en það virðist ekki hafa átt hljómgrunn meðal kjósenda. „Þeir fagna þessu í Brussel,“ sagði Wilders þegar ljóst var í hvað stefndi. Þó viðræður stóru flokkanna hafi verið boðaðar eiga þeir talsvert óuppgert þar sem Verkamannaflokkurinn er hallur undir að ýta undir hagvöxt með opinberum verkefnum á meðan frjálslyndir vilja halda áfram aðhaldsstefnu sinni, sem hafi gengið ágætlega hingað til. - þj
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fleiri fréttir Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Sjá meira