Innlent

Fréttaljósmynd ársins valin

mynd/Daníel Rúnarsson
Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, hlaut verðlaun fyrir mynd ársins 2011 þegar blaðamannaverðlaunin voru afhent í dag.

Daníel hlaut verðlaunin fyrir þessa mögnuðu mynd sem sýnir alþingismanninn Árna Þór Sigurðsson augnablikum eftir að hann fékk egg í gagnaugað.

Kollegar Árna Þórs voru fljótir að átta sig á aðstæðum og komu honum til bjargar.

Stuttu eftir atvikið sagði Árni Þór í viðtali við Vísi að hann hefði skilning á því að fólk mótmælti en sagði að það væri synd ef mótmælin fælu í sér skemmdir og ofbeldi.

Hægt er að sjá allar myndir Daníels frá atvikinu hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×