Innlent

Svona skal farga sparperum

Karen Kjartansdóttir skrifar
Gera þarf varúðarráðstafanir þegar svokallaðar sparperur brotna og alltaf þarf að skila þeim í sérstök ílát á endurvinnslustöðum. Fréttastofa fékk sérfræðing hjá Umberfisstofnun til að sýna réttu handtökin við þessar perur.

Sparperur nota um einn áttunda af þeirri orku sem glóperur nota og þykja því umhverfisvænni. Það þarf þó að hafa í huga að þær innihalda kvikasilfur og geta því verið varasamar umhverfinu. Almenningur þarf auk þess að kunna rétt viðbrögð ef þær brotna.

Við fengum Elvu Rakel Jónsdóttur sérfræðing hjá Umhverfisstofnun til að kenna okkur rétt viðbrögð. Elva hvetur fólk til að byrja á því að lofta út en fleiri atriði þarf að hafa í huga til að þyrla ekki kvikasilfri um húsið.

„Við viljum reyna að takmarka flæði kvikasilfursins um rýmið. Þess vegna þrífum við glerbrotin ekki með sóp eða ryksugu, með því erum við í raun að þyrla þessum um herbergið. Þess vegna viljum við nota pappaspjöld til að þrífa upp glerbrotin. Síðan skóflum við þessu upp í ílát. Síðustu agnirnar tökum við með blautum pappír eða límbandi."

Svo séu leifarnar settar í lokað ílát, til dæmis glerkrukku og á endurvinnslustöð hvort sem þær brotna eða ekki. Þetta virðist meira vesen en hlaust af glóperum, er þetta þess virði?

„Sparpera notar um það bil átta sinnum minna rafmagn en glóperan. Við erum því að stuðla að mun betri nýtingu á þeirri orku sem þarf til að lýsa upp rýmið okkar."

Elva segir að þeim sem geðjast alls ekki að sparperum þurfi ekki að örvænta, aðrir möguleikar séu í boði.

Við á Stöð2 fórum vitanlega með peruna í endurvinnslu. En drifum okkur svo að kynna okkur aðra kosti til lýsingar. Hann Sigurjón Karlsson starfsmaður í BYKO var nýkominn af námskeiði um perur og segir hann að LED-perur muni taka alveg við eftir um það bil áratug. Þær sé eiturefnalausar og endingagóðar. Enn sem komið er séu þær samt heldur dýrar.

Fínasta ljósapera BYKO dugir í um það bil 20 ár og er eiturefnalaus. Hún kostar hins vegar 12 þúsund krónur. Mögulega verður þetta jólagjöfin í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×