Svona skal farga sparperum Karen Kjartansdóttir skrifar 18. október 2012 20:13
Gera þarf varúðarráðstafanir þegar svokallaðar sparperur brotna og alltaf þarf að skila þeim í sérstök ílát á endurvinnslustöðum. Fréttastofa fékk sérfræðing hjá Umberfisstofnun til að sýna réttu handtökin við þessar perur. Sparperur nota um einn áttunda af þeirri orku sem glóperur nota og þykja því umhverfisvænni. Það þarf þó að hafa í huga að þær innihalda kvikasilfur og geta því verið varasamar umhverfinu. Almenningur þarf auk þess að kunna rétt viðbrögð ef þær brotna. Við fengum Elvu Rakel Jónsdóttur sérfræðing hjá Umhverfisstofnun til að kenna okkur rétt viðbrögð. Elva hvetur fólk til að byrja á því að lofta út en fleiri atriði þarf að hafa í huga til að þyrla ekki kvikasilfri um húsið. „Við viljum reyna að takmarka flæði kvikasilfursins um rýmið. Þess vegna þrífum við glerbrotin ekki með sóp eða ryksugu, með því erum við í raun að þyrla þessum um herbergið. Þess vegna viljum við nota pappaspjöld til að þrífa upp glerbrotin. Síðan skóflum við þessu upp í ílát. Síðustu agnirnar tökum við með blautum pappír eða límbandi." Svo séu leifarnar settar í lokað ílát, til dæmis glerkrukku og á endurvinnslustöð hvort sem þær brotna eða ekki. Þetta virðist meira vesen en hlaust af glóperum, er þetta þess virði? „Sparpera notar um það bil átta sinnum minna rafmagn en glóperan. Við erum því að stuðla að mun betri nýtingu á þeirri orku sem þarf til að lýsa upp rýmið okkar." Elva segir að þeim sem geðjast alls ekki að sparperum þurfi ekki að örvænta, aðrir möguleikar séu í boði. Við á Stöð2 fórum vitanlega með peruna í endurvinnslu. En drifum okkur svo að kynna okkur aðra kosti til lýsingar. Hann Sigurjón Karlsson starfsmaður í BYKO var nýkominn af námskeiði um perur og segir hann að LED-perur muni taka alveg við eftir um það bil áratug. Þær sé eiturefnalausar og endingagóðar. Enn sem komið er séu þær samt heldur dýrar. Fínasta ljósapera BYKO dugir í um það bil 20 ár og er eiturefnalaus. Hún kostar hins vegar 12 þúsund krónur. Mögulega verður þetta jólagjöfin í ár.
Mest lesið Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Innlent Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn Innlent Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Erlent „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Innlent Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Innlent Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Innlent Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Erlent Fleiri fréttir Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Sjá meira