Innlent

Hleypur, hjólar og syndir

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Kári Steinn Karlsson, maraþonhlaupari.
Kári Steinn Karlsson, maraþonhlaupari.
Kári Steinn Karlsson maraþonhlaupari ætlar að kveðja landsmenn á morgun með því að taka þátt í þríþraut, en á mánudag tekur afreksmaðurinn ungi stefnuna á Ólympíuleikana í Lundúnum.

Kári Steinn, Steinar og Guðlaug keppa saman í „½ Járnkarli" á morgun. Guðlaug hefur leik og syndir 1900 metra, þá tekur Steinar við og hjólar 90 kílómetra og að því loknu hleypur Kári Steinn hálft maraþon, sem er þó aðeins undir áætlun samkvæmt æfingarplani ólympíufarans.

„Þetta á að vera 35 km dagur og hlaupið er 21 km þannig að þá bæti ég við, hleyp eitthvað á undan í upphitun og svo sjáum við til hvað ég verð kominn með marga kílómetra þegar ég verð kominn í mark, þá bæti ég bara aðeins við," segir Kári Steinn.

Hvað ætlarðu svo að gera eftir Járnkarlinn? Ætlarðu að taka því rólega? Eða tekurðu því einhverntímann rólega? „Tek því aldrei alveg rólega held ég, ég á flug til London daginn eftir og svo eru það áfram nokkuð stífar æfingar, maður er samt farinn að létta álagið umtalsvert en það verður samt æft vel næstu vikurnar og svo verður síðasta vikan fyrir hlaupin nokkuð auðveld, það verður samt 100 km plús það."

Kári Steinn keppir á Ólympíuleikunum þann 12. ágúst og verður þar með annar Íslendingurinn til að ná þeim merka árangri. Honum líst honum vel á að kveðja landið með þátttöku sinni í Járnkarlinum.

„Það má alveg segja það, í staðinn fyrir að láta sig bara hverfa, vera með í svona skemmtilegum viðburði. Og þá verður æfingin oft betri fyrir vikið, maður er svona betur stemmdur en að vera einn einhversstaðar að hlaupa í Heiðmörkinni."

Þannig að þetta á eftir að hjálpa þér fyrir Ólympíuleikana? „Já, ætli það ekki bara."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×