Fyritækin skylduð til að gera öryggisáætlun 22. mars 2012 15:10 Oddný Harðardóttir, ráðherra ferðamála.
Allir sem bjóða ferðir innanlands verða skyldaðir til þess að útbúa öryggisáætlun, nái nýtt frumvarp um breytingu á lögum um skipan ferðamála fram að ganga. Þetta kom fram á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fer í dag. Oddný Harðardóttir, ráðherra ferðamála, greindi frá því á fundinum, að hún bindi mestar vonir við þennan hluta frumvarpsins sem snýr að öryggi ferðamanna. „Í öryggisáætlun á að koma fram mat á áhættu viðkomandi ferðar og lýsing á því hvernig ferðaskipuleggjandi hyggist bregðast við beri vá að höndum í ferðinni,“ segir í tilkynningu. „Verði frumvarpið afgreitt í vor fær Ferðamálastofa það verkefni að leiðbeina við gerð öryggisáætlana, skrá þær og birta. Þá mun Ferðamálastofa halda uppi eftirliti með því að ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur leggi fram öryggisáætlanir og leggi á sektir ef þær eru ekki fyrir hendi." Þá mun í frumvarpinu einnig vera komið til móts við breytt umhverfi í greininni að sögn ráðherrans. „Stofnun Íslandsstofu og Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða hefur breytt hlutverki Ferðamálastofu auk þess sem Ferðamálaráð hefur lent í nokkrum tilvistarvanda í kjölfar stofnunar Íslandsstofu og tilkomu Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, Íslands allt árið og stórra klasa um allt land. Því gerir frumvarpið ráð fyrir samráðsvettvangi um ferðamál sem hittist fremur sjaldan en hefur skýrt hlutverk. Að honum munu eiga aðild m.a. Vegagerðin, Umhverfisstofnun og Félag leiðsögumanna."
Mest lesið Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Holskefla í kortunum Innlent Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Innlent Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Innlent Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Innlent Sprenging í Osló og stórt svæði girt af Erlent „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Innlent Bílslys í Laugardal Innlent Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Innlent Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Innlent Fleiri fréttir Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Holskefla í kortunum Bílslys í Laugardal „Við erum notuð sem hræðsluáróður fyrir verðandi foreldra“ „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Núverandi kvikusöfnunartímabil geti dregist á langinn Brennuvargur gengur laus, stórfjölgun krabbameina og í beinni frá Köben Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Inga eigi að kalla saman þjóðaröryggisráð þegar í stað Skólameistarar styðja ekki breytingar ráðherra Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Örlög hjartanna enn óráðin Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa Forsetahjónin á leið til Finnlands Benti á mikilvægi fyrirmynda þegar kæmi að jafnréttismálum Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Mæla hiklaust með lyfinu á meðgöngu ef þörf þykir á Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Vara við svikapóstum frá Ríkisskattstjóra Dularfullir drónar og umdeildar kenningar um einhverfu og parasetamól Telja sig vita hverjir grímuklæddu mennirnir eru Ferðum aflýst og einni vél snúið við vegna drónaumferðar í Kaupmannahöfn Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Aðeins helmingur telur sig við góða heilsu Rannsaka húsbrot og eldsvoða á Sauðárkróki Krefur Reykjavíkurborg um frekari svör vegna fundargerðar Sjá meira