Hrefnu fækkaði töluvert við Ísland BBI skrifar 25. október 2012 15:42
Niðurstöður reglulegra hvalatalninga sýna að hrefnu fækkaði umtalsvert á grunnsævi við Ísland á árunum 2001 til 2007. Ekki liggja fyrir nægileg gögn til að skýra þá breytingu á útbreiðslu hrefnu sem virðist hafa átt sér stað. Það var þingmaður Framsóknarflokksins, Gunnar Bragi Sveinsson, sem spurði atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra hvernig stofnar helstu hvalategunda við landið hefðu þróast síðustu 10 ár. Svörin miðuðu við reglulegar talningar sem gerðar voru. Svörin miðuðu því einkum við breytingar milli talninga árið 2001 og 2007, en næstu talningar er að vænta árið 2015. Stærð hrefnustofnsins við landið breyttist ekki með marktækum hætti á árunum 1987-2001. Hins vegar minnkaði stofninn við landgrunn Íslands umtalsvert eftir það. Árið 2001 var stofninn metinn 44 þúsund dýr. Árið 2007 var hann um 21 þúsund dýr og í aukatalningum sumarið 2009 var fjöldinn metinn um 10 þúsund dýr. Hins vegar sýndu talningar í Faxaflóa sumarið 2008 mun hærri þéttleika, sambærilegan við það sem var árið 2001. Það bendir til þess að um sé að ræða breytingar á útbreiðslu frekar en minnkandi stofnstærð. Ekki liggja fyrir nægileg gögn til að skýra nánar þessa breytingu. Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur, tekur fram að tölurnar séu alls ekki hárnákvæmar en engu að síður um marktæka fækkun að ræða. „Það er samt kannski ekki hægt að tala um fækkun í hrefnustofninum. Hrefnustofninn sem við veiðum úr nær frá Austur Grænlandi, um Ísland til Jan Mayen. Við teljum líklegast að þessi fækkun við strendur Íslands sé afleiðing af fæðuskorti og hrefnan hafi fært sig kannski upp að ströndum Grænlands," segir Gísli. Hvalveiðar í vísindaskyni við strendur Íslands hófust aftur árið 2003. Á tímabilinu 2003 til 2007 voru samtals veiddar um 200 hrefnur. Hvalveiðar í atvinnuskyni hófust árið 2006. Gísli telur útilokað að hvalveiðar hafi verið orsökin fyrir fækkun hrefnu við landið. Í talningunum komu fram marktækar breytingar á stofnum langreyðar, hnúfubaks og steypireyðar á árunum 2001 til 2007.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Sjá meira