Innlent

Hæstiréttur staðfesti dóm yfir hælisleitanda

Hæstiréttur
Hæstiréttur mynd/GVA
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóm Reykjaness yfir 28 ára gömlum Alsírbúa sem kom hingað til lands frá Noregi og framvísaði fölsuðum skilríkjum. Maðurinn var dæmdur til 30 daga fangelsisvistar. Honum var einnig gert að greiða áfrýjunarkostnað málsins.

Maðurinn, sem heitir Adil Rouabhia og er fæddur í Guelma í norðaustur Alsír, viðurkenndi að hann væri ekki réttmætur eigandi skilríkisins sem hann framvísaði. Hann sagði hafa fengið skilríkið lánað hjá félaga sínum í þeim tilgangiað komast hingað til lands til að hitta kærustu sína.

Við í farangri fundust ýmis skjöl merkt honum sem bæði voru á frönsku og arabísku. Við skoun skilríkjasérfræðings lögreglustjórans á Suðurnesjum kom í ljós að kennivottorðið sem maðurinn framvísaði við lögreglu var grunnfalsað, það er, falsað að öllu leyti.

Maðurinn hélt því fram að lífi hans eða frelsi væri ógnað í Alsír. Taldi Hæstiréttur manninn ekki hafa fært traust rök fyrir því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×