Innlent

70 skip í höfninni

Örtröð er í höfninni í Reykjavík og eru síðustu skipin væntanleg inn núna á þriðja tímanum. Búist er við því að þau verði hátt í 70 talsins samkvæmt upplýsingum frá hafnsögumanni.

Þetta eru fiskiskip í eigu útgerðarfélaga innan LÍÚ og margir bátar í Landssambandi smábátaeigenda. Útgerðarmenn efna til samstöðufundar á Austurvelli klukkan fjögur í dag, en eftir það halda skipin aftur til veiða.

Kröftugar flautur skipanna óma yfir borgina og hafa gert frá því í morgun. Starfsmaður, sem er á vaktinni sagðist í morgun aldrei hafa séð annan eins fjölda á 33 ára starfsferli sínum hjá höfninni.

Myndatökumaður fréttastofunnar tók þessar myndir í höfninni í morgun. Hægt er að horfa á myndskeiðið hér að ofan og á sjónvarpsvef Vísis. Hér má jafnframt sjá myndir sem Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, tók frá höfninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×