Innlent

Hjón ákærð fyrir að ræna apótek

Ákæra gegnum hjónum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en þau eru ákærð fyrir að hafa rænt apótek í febrúar árið 2009. Konan, sem er um fertugt, er ákærð fyrir að hafa farið inn í apótekið vopnuð hnífi og sprautu, með andlit sitt hulið.

Hún á svo að hafa ógnað starfsmanni með hnífnum og sprautunni sem í var blóð og hún sagði eyðnismitað. Konan heimtaði að afgreiðslumaðurinn léti hana fá lyfið Contalgin sem og hann gerði. Hún hafði þrjár pakkningar með sér en verðmæti lyfjanna voru um 54 þúsund krónur.

Eiginmaður hennar, rúmlega fimmtugur karlmaður, beið svo eftir konunni á bifreið fyrir utan apótekið. Bæði eru þau ákærð fyrir að hafa skipulagt ránið.

Hjónin eru þekkt fyrir eiturlyfjafíkn sína en þau giftu sig árið 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×