Innlent

Dæmdur fyrir að rækta kannabisplöntur

Rétt tæplega fertugur karlmaður var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa haft undir höndum samtals 102 kannabisplöntur.

Maðurinn var tvívegis handtekinn með kannabisplönturnar. Í fyrra skiptið var hann handtekinn í febrúar á þessu ári en þá hafði hann 78 kannabisplöntur í sinni vörslu. Að auki var með rúmt kíló af maríjúana og lítilræði af amfetamíni.

Maðurinn var svo aftur handtekinn í mars en þá var hann með 24 kannapisplöntur. Maðurinn játaði brot sín skýlaust og hefur ekki áður komist í kast við lögin. Þótti því rétt að fresta refsingu í þrjú ár haldi hann almennt skilorð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×