Innlent

Tengdó farsæl á Grímunni

Valur Freyr Einarsson í sýningunni Tengdó.
Valur Freyr Einarsson í sýningunni Tengdó.
Það er óhætt að segja að leikritið Tengdó hafi sigrað á Grímunni í kvöld, en leikhúsverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu nú í kvöld. Þannig var Tengdó í uppfærslu CommonNonsense og Borgarleikhússins valin leiksýning ársins. Þá fékk Valur Freyr Einarsson, verðlaun sem leikari ársins í aðalhlutverki í sömu sýningu. Valur Freyr getur unað vel við sitt því hann hlaut einnig verðlaun sem leikskáld ársins.

Guðjón Pedersen var kjörinn leikstjóri ársins fyrir Afmælisveisluna og Kristbjörg Kjeld var valin leikkona ársins í aðalhlutverki í sömu sýningu.

Barnasýning ársins var sýningin Skrímslið systir mín. Það var svo Leikhópurinn 16 elskendur og uppfærsla þeirra á verkinu Sýning ársins sem fékk sérstök verðlaun sem nefnast Sproti ársins.

Athygli vekur að sú sýning sem hlaut flestar tilnefningar, Vesalingarnir, hlaut aðeins ein verðlaun, það var fyrir söngvara ársins. Þór Breiðfjörð fékk þau verðlaun fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Vesalingunum í sviðssetningu Þjóðleikhússins.

Listi yfir öll Grímuverðlaun 2012 hér fyrir neðan:

SÝNING ÁRSINS 2012

· TENGDÓ

o eftir Val Frey Einarsson

o leikstjórn Jón Páll Eyjólfsson

o sviðssetning CommonNonsense og Borgarleikhússins

LEIKSKÁLD ÁRSINS 2012

· Valur Freyr Einarsson fyrir leikverkið Tengdó í sviðssetningu CommonNonsense og Borgarleikhússins

LEIKSTJÓRI ÁRSINS 2012

· Guðjón Pedersen fyrir leikstjórn í leiksýningunni Afmælisveislunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins

LEIKARI ÁRSINS 2012 Í AÐALHLUTVERKI

· Valur Freyr Einarsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Tengdó í sviðssetningu CommonNonsense og Borgarleikhússins

LEIKKONA ÁRSINS 2012 Í AÐALHUTVERKI

· Kristbjörg Kjeld fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Afmælisveislunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins

LEIKARI ÁRSINS 2012 Í AUKAHLUTVERKI

· Björn Thors fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Afmælisveislunni í sviðssetningu Þjóðleikhússins

LEIKKONA ÁRSINS 2012 Í AUKAHLUTVERKI

· Ólafía Hrönn Jónsdóttir fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Heimsljósi í sviðssetningu Þjóðleikhússins

LEIKMYND ÁRSINS 2012

· Ilmur Stefánsdóttir fyrir leikmynd í leiksýningunni Hreinsun í sviðssetningu Þjóðleikhússins

BÚNINGAR ÁRSINS 2012

· Filippía I. Elísdóttir fyrir búninga í óperunni Töfraflautunni í sviðssetningu Íslensku óperunnar

LÝSING ÁRSINS 2012

· Halldór Örn Óskarsson fyrir lýsingu í leiksýningunni Hreinsun í sviðssetningu Þjóðleikhússins

TÓNLIST ÁRSINS 2012

· Eiríkur G. Stephensen og Hjörleifur Hjartarson fyrir tónlist í leiksýningunni Sögu Þjóðar í sviðsetningu Hunds í óskilum, Leikfélags Akureyrar og Borgarleikhússins

HLJÓÐMYND ÁRSINS 2012

· Davíð Þór Jónsson fyrir hljóðmynd í leiksýningunni Tengdó í sviðssetningu CommonNonsense Borgarleikhússins

SÖNGVARI ÁRSINS 2012

· Þór Breiðfjörð fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Vesalingunum í sviðssetningu Þjóðleikhússins

DANSHÖFUNDUR ÁRSINS 2012

· Anton Lachky fyrir kóreografíu í dansverkinu Fullkominn dagur til drauma. Verkið var unnið í samvinnu við dansara Aðalheiður Halldórsdóttir, Ásgeir Helgi Magnússon, Cameron Corbett, Emilía Benedikta Gísladóttir, Hannes Þór Egilsson, Inga Maren Rúnarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Þyrí Huld Árnadóttir. Sviðssetning Íslenski dansflokkurinn

DANSARI ÁRSINS 2012

· Ásgeir Helgi Magnússon fyrir hlutverk sitt í dansverkinu Á vit í sviðssetningu Íslenska dansflokksins og GusGUs í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík

BARNASÝNING ÁRSINS 2012

· SKRÍMSLIÐ LITLA SYSTIR MÍN

o Höfundar Helga Arnalds og Charlotte Böving

o Sviðssetning 10 fingur

ÚTVARPSVERK ÁRSINS 2012

· Egils saga

· útvarpsleikgerð eftir Morten Cranner

· Þýðandi leiktexta: Ingunn Ásdísardóttir

· Þýðandi bundins máls: Þórarinn Eldjárn

· Tónlist: Hildur Ingveldar- Guðnadóttir

· Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson

· Leikstjóri: Erling Jóhannesson

· Framleiðandi: Útvarpsleikhúsið á RÚV

SPROTI ÁRSINS 2012

· Leikhópurinn 16 elskendur og uppfærsla þeirra á verkinu Sýning ársins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×