Aukin sókn í gjaldeyrisglufur kallaði á aðgerðir 14. mars 2012 05:30 Stjórnvöld ákváðu að fella niður undanþágur á gjaldeyrishöftum til að stemma stigu við auknu útflæði gjaldeyris vegna greiðslna af skuldabréfum. Fréttablaðið/Getty
Aðstoðarseðlabankastjóri segir að svo hafi virst sem fjárfestar hafi gagngert og í auknum mæli nýtt sér glufur í gjaldeyrishöftum til að hagnast mikið. Með aðgerðaleysi hafi grundvöllur haftanna brostið. Aukin ásókn í skammtímaskuldabréf hér á landi og aukinn áhugi á útgáfu slíkra bréfa, að því er virðist gagngert til að nýta glufu í gjaldeyrishöftum, olli stjórnvöldum og Seðlabanka áhyggjum og kallaði á aðgerðir að sögn Arnórs Sighvatssonar, aðstoðarseðlabankastjóra. Áður en lög um hert gjaldeyrishöft voru samþykkt aðfaranótt þriðjudags höfðu fjárfestar undanþágu til að flytja út gjaldeyri sem fékkst með greiðslum og verðbótum af skuldabréfum. Næsti gjalddagi á skammtímaskuldabréfum var á morgun, fimmtudag, og þá hefðu sjö milljarðar króna komið til greiðslu sem hefði mátt flytja óhindrað úr landi ef ekki hefðu komið til lagabreytingarinnar. Annað eins hefði svo komið til greiðslu í haust. Aðspurður um hvort ekki hafi verið fyrirsjáanlegt, þegar höftin voru sett á á sínum tíma, að þessi glufa myndi verða til vandræða sagði Arnór að vitað hafi verið af glufunni. „Síðustu mánuði hefur þetta hins vegar verið að vinda upp á sig þar sem erlendir aðilar hafa verið að auka eignarhald sitt á skuldabréfum. Þeir hafa svo notað þessa leið til að kaupa gjaldeyri og svo notað afraksturinn til þess að kaupa aftur skuldabréf. Þannig stækka þeir sjóðinn stöðugt og hagnast mikið með hverjum hring.“ Arnór segir að það sem áður hafi verið talið viðráðanlegt ástand hefði getað breyst til hins verra og útgáfa skuldabréfa sem væru sérstaklega til þess fallin að notfæra sér glufuna hefðu getað valdið útflæði gjaldeyris sem erfitt sé að spá fyrir um. „Ef það myndi gerast yrði grundvöllur þess að vera með höft í raun brostinn,“ segir Arnór. Varðandi hinn hluta laganna, sem laut að því að fella niður undanþágu þrotabúa föllnu bankanna til að færa gjaldeyri út úr landi, segir Arnór að um sé að ræða aðgerð sem eigi að koma öllum til góða. „Okkar ætlun er alls ekki að hefta útgreiðslur slitastjórna til erlendra kröfuhafa. Við erum þvert á móti að reyna að finna leiðir til að þær geti átt sér stað, án þess að það valdi óstöðugleika sem gæti meðal annars skaðað þeirra eigin hagsmuni. Við teljum að þarna fari saman hagsmunir þeirra, þjóðarbúsins og almennings, en það þarf að samræma aðgerðir þannig að úr verði heildaráætlun sem stenst.“ Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, sagði í samtali við Fréttablaðið að stjórnin myndi nú skoða hvort eða hvaða áhrif lagasetningin myndi hafa á Glitni. „Ég á ekki von á að þetta muni hafa nein stórkostleg áhrif,“ sagði Steinunn. Nokkur umræða hefur spunnist um áhrif lagasetningarinnar á ímynd landsins út á við. Aðspurður segist Arnór ekki telja að aðgerðin muni hafa neikvæð áhrif. „Okkar áætlun hefur notið trausts erlendis, meðal annars hjá lánsmatsfyrirtækjunum. Höftin eru neikvæður þáttur í þeirra mati, en hins vegar er áhættan við að losa þau með óskipulegum hætti enn neikvæðari.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira