Stjörnuparið Mariah Carey og Nick Cannon eiga í fullu fangi með tvíburana sína, Monroe og Moroccan sem eru orðnir átján mánaða. Nick segist þó vera duglegri en eiginkona sín að hafa hemil á þeim.
"Börnin stjórna heimilinu. Við hlaupum bara á eftir þeim og eltum þau. Konan mín er dívan sem hún er vanalega en ég er að reyna að halda í við tvíburana," segir Nick.
Bleyjuskiptin lenda oftast nær á greyinu honum Nick.
"Við skiptumst á en einhverra hluta vegna lendi ég oftar í því að skipta um bleyjur. En ég er ekkert hræddur við það."
