Innlent

Rannsaka stuld á stórri gröfu á Ísafirði

Lögreglan á Ísafirði rannsakar nú hver var að verki þegar stórri gröfu var stolið af byggingasvæði nýs öldrunarheimilis að Torfnesi og ekið að verslunarkjarnanum Neista aðfararnótt sunnudags.

Þjófurinn var á bak og burt þegar lögregla kom á vettavang, en hún telur málið alvarlegt þar sem hann hefði getað ekið gröfunni á hús, bíla eða vegfarendur, og óskar eftir vitnum eða upplýsingum um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×