Innlent

Fótboltaáhugamenn leggi löglega

BBI skrifar
Mynd/Þorkell
Lögreglan beinir þeim tilmælum til fótboltaáhugamanna sem ætla á völlinn í kvöld að sjá Ísland og Úkraínu að leggja löglega.

Stöðubrot eru ekki ný af nálinni en þó hefur þokast í rétta átt í þeim efnum að mati lögreglu og satt að satt að segja hefur verið lítið um stöðubrot í tengslum við landsleiki í haust. „Það má ef til vill þakka ítrekuðum tilmælum lögreglunnar," segir í tilkynningu lögreglu sem vonast til þess að sú þróun haldi áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×