Innlent

Tóku upp auglýsingu á Langjökli

Í byrjun júní kom japanski dekkjaframleiðandinn Yokohama til Íslands til að taka upp vetrardekkjaauglýsingu á Langjökli. Japanskt og franskt framleiðslufyrirtæki stóðu sameiginlega að auglýsingunni, en Peppi hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus aðstoðaði við undirbúninginn.

Í fréttatilkynningu frá Dekkjahöllinni, sem er með umboð fyrir Yokohama á Íslandi, segir að um 60 manns hafi komið að gerð auglýsingarinnar og fóru tökurnar fram á tveimur dögum. Um var að ræða nokkuð stórt og kostnaðarsamt verkefni hér á landi, en fyrir tökuna var Lotus Evora, afturhjóladrifinn sportbíll frá Þýskalandi, fluttur sérstaklega til landsins.

Útbúin var sérstök 400 metra braut á Langjökli fjórum dögum fyrir tökur, en ástæða fyrir vali Yokohama á Langjökli var gott aðgengi upp á jökul á þessum árstíma og kjöraðstæður til að sýna eiginleika dekkjanna.

Hér að ofan má sjá gerð auglýsingarinnar og hér má sjá auglýsinguna sjálfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×