Erlent

Þing rofið og boðað til kosninga í Ísrael

Ísraelska þingið samþykkti í gærkvöldi að rjúfa þing þegar í stað og boða til kosninga í janúar á næsta ári en það er ári fyrr en kosningarnar áttu að vera.

Þingrofið var samþykkt með miklum meirihluta á þinginu. Það er meir en vika síðan að Benjamin Netanjahu forsætisráðherra Ísraels tilkynnti um að hann ætlaði sér að flýta kosningunum sökum þess að stjórnarflokkarnir gætu ekki komið sér saman um ábyrg fjárlög.

Nýjustu skoðanakannanir benda til að Likud flokkur Netanjahu og samstarfsflokkar hans muni sigra í kosningunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×