Lagerbäck: Of mikil bjartsýni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. september 2012 20:54 Nordic Photos / Getty Images
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, segir að íslenska liðið hafi nálgast leikinn með of mikilli bjartsýni - sérstaklega þegar kom að varnarleik liðsins. Ísland tapaði í kvöld fyrir Kýpur ytra, 1-0, eftir að hafa unnið Noreg fyrir helgi. Strákarnir náðu þó aldrei að sýna sínar bestu hliðar í dag og kom sérstaklega lítið úr sóknarleik liðsins. „Þetta eru gríðarlega mikil vonbrigði fyrir okkur," sagði Lagerbäck við Vísi eftir leikinn. „Ég tel að við höfum verið of bjartýsnir fyrir þennan leik. Við reyndum að pressa of mikið á þá og náðum aldrei að koma okkur almennilega inn í leikinn." Hann hrósaði þó leikmönnum fyrir að leggja sig fram. „Þeir voru duglegir og lögðu sig fram. Og þrátt fyrir að við spiluðum ekki vel náðu þeir [Kýpverjar] ekki að skapa sér það mörg færi. Þeir áttu nokkur skot sem voru ágæt en Hannes [Þór Halldórsson, markvörður] spilaði virkilega vel í kvöld og sá um þetta." Hann sagði að það hefði erfitt að koma leik liðsins í gang þegar að varnarleikurinn gekk jafn illa og raun bar vitni. „Við náðum aldrei að verjast nógu vel og þá verður erfitt að byggja upp sóknir. Þeir gerðu vel með því að spila grimman sóknarleik og pressuðu okkur stíft. Það gerði okkur erfitt fyrir," sagði Lagerbäck. „Við vorum að vinna boltann á erfiðum stöðum og fyrir vikið varð lítið úr því. Engu að síður hefðum við mátt hafa betri stjórn á spilinu okkar og sendingum. Þeir gerðu vel með því að loka á okkur en það kom meira til. Meira að segja föstu leikatriðin voru léleg hjá okkur en þau hafa verið mjög góð hingað til." Hann segir að nálgun íslenska liðsins á leikinn hafi líklega verið röng. „Kannski vorum við fullbjartsýnir fyrir leikinn, bæði ég og leikmenn, eftir leikinn gegn Noregi. Við náðum aldrei að verjast vel í leiknum og þá var erfitt að hafa aðra þætti í lagi. Það er erfiðara að spila mótsleiki en vináttulandsleiki og við þurfum að draga okkar lærdóm af þessu. Þetta var bara ekki okkar dagur."
HM 2014 í Brasilíu Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Kýpur - Ísland 1-0 | Bitlaust og svekkjandi Íslendingum var snarlega kippt niður á jörðina þegar að landsliðið tapaði, 1-0, fyrir Kýpverjum ytra í undankeppni HM 2014. 11. september 2012 14:15 Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Fleiri fréttir Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Sædís og Sandra sameinaðar í Köln Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ Argentíska landsliðið má búast við sekt „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Dortmund tilkynnir komu Bjarka Hrafns Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Reyndu að brjótast inn í hús Yamals De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ „Mig dreymdi þetta“ „Svekkjandi er rétta orðið“ „Ég er feginn að vinna loksins á heimavelli“ Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ „Miður mín fyrir hönd allra“ Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Kýpur - Ísland 1-0 | Bitlaust og svekkjandi Íslendingum var snarlega kippt niður á jörðina þegar að landsliðið tapaði, 1-0, fyrir Kýpverjum ytra í undankeppni HM 2014. 11. september 2012 14:15