Lífið

Toppfyrirsæta afmynduð af dópneyslu

Jael Strauss.
Jael Strauss.
Fyrirsætan Jael Strauss vakti mikla athygli í áttundu þáttaröðinni af bandaríska raunveruleikaþættinum America's Next Top Model sem ofurfyrirsætan Tyra Banks stýrir.

Jael var fersk og falleg og heillaði alla upp úr skónum.

Nú er sagan önnur og það er ekki sjón að sjá hana Jael um þessar mundir eins og sést í nýjasta þættinum af Dr. Phil sem sýndur er vestan hafs í dag.

Þar upplýsir fjölskylda Jael að hún sé háð fíkniefnum og að neysla hennar hafi orðið til þess að tennur hennar séu byrjaðar að rotna og líkami hennar sé þakinn sárum.

Fjölskyldan fær Dr. Phil til að hjálpa sér við að losa Jael við dópið en Jael streitist á móti.

Jael býr nú á götunni en hún missti stjórn á lífi sínu árið 2007 þegar vinur hennar dó úr of stórum skammti á meðan Jael tók þátt í America's Next Top Model.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.