Frændinn talinn sekur en samt sýknaður Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. febrúar 2012 11:00 Dómsalur. Myndin er úr safni.
Maður sem ákærður var fyrir fjölda kynferðisbrota gagnvart bróðurdóttur sinni hefur verið sýknaður í dómi Héraðsdóms Vesturlands frá fyrsta þessa mánaðar. Samkvæmt ákæru braut maðurinn gegn stúlkunni á árunum 1990 til 1996, frá því hún var sex ára og til þrettán ára aldurs. Í niðurstöðum dómsins kemur fram að framburður stúlkunnar sé talinn trúverðugur og fái stuðning í fjölda atriða. Að því virtu þykir dómnum „ekki varhugavert að slá því föstu að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem hann er ákærður fyrir og rétt er færð til refsiákvæða í ákæru“. Vafi er hins vegar talinn leika á hvenær síðustu brot áttu sér stað og var það talið manninum í hag. Ósannað var því talið að hann hefði brotið gegn stúlkunni eftir að hún varð 12 ára. Á þeim tíma vörðuðu brot mannsins 12 ára fangelsi og giltu ákvæði um að brotin fyrndust á 15 árum. „Í samræmi við framangreinda niðurstöðu dómsins verður að telja að fyrningarfrestur hafi byrjað að líða 17. júní 1995 og var sök því fyrnd þann 17. júní 2010,“ segir í dómnum, en manninum var tilkynnt um framkomna kæru 22. nóvember 2010. „Verður því ekki hjá því komist að sýkna hann af öllum kröfum ákæruvaldsins í máli þessu.“ Bótakröfum var vísað frá í dómnum, en hann kváðu upp Hjörtur O. Aðalsteinsson dómstjóri og meðdómarar hans, Allan Vagn Magnússon og Barbara Björnsdóttir.
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira