Íslenski boltinn

Þróttur valtaði yfir topplið Víkings frá Ólafsvík

Halldór Hilmisson skoraði tvö mörk fyrir Þrótt í kvöld.
Halldór Hilmisson skoraði tvö mörk fyrir Þrótt í kvöld.
Fjórir leikir fóru fram í 1. deild karla í kvöld og breyttist staða liða lítið eftir leikina. Þrír af þessum fjórum leikjum enduðu nefnilega með jafntefli.

Það var aðeins Þróttur sem náði sigri í kvöld en Þróttarar kjöldrógu topplið Víkings frá Ólafsvík og komust um leið upp í fjórða sætið. Víkingur er enn í toppsætinu þrátt fyrir tapið.

Haukar eru jafnir að stigum við Þrótt með 24 stig. Fjölnir er með 26 rétt eins og Þór en Víkíngur Ó. á toppnum með 28 stig.

Úrslit:

Leiknir R. - Haukar 2-2

Ólafur Hrannar Kristjánsson, Pétur Már Harðarson - Árni Vilhjálmsson, Gunnlaugur Fannar Guðmundsson.

Fjölnir - Víkingur R. 1-1

Haukur Lárusson - Hjörtur Júlíus Hjartarson.

Tindastóll - KA 0-0

Þróttur R. - Víkingur Ó.4-1

Halldór Arnar Hilmisson 2, Guðfinnur Þórir Ómarsson 2 - Guðmundur Magnússon.

úrslit frá urslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×