Innlent

Spjaldtölvur og snjallsímar gjörbreyta kennsluaðferðum

Dr. William Rankin kennir ensku og miðaldafræði við Abilene Christian University í Texas og á 25 ára starfsferil að baki sem kennari. Hann flutti erindi á skólaráðstefnu sem fór fram fyrir helgi á vegum epli.is. Fyrir fimm árum fór hann að tileinka sér nýja kennsluhætti með tilkomu spjaldtölva og snjallsíma og hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir frumkvöðlastarf sitt.

Hann segist hafa gjörbreytt sínum kennsluaðferðum eftir að spjaldtölvur og snjallsímar komu á markaðinn.

Nemendur hans hafi tekið þessu vel og afköstin hafi verið góð. Hann notist æ sjaldnar við próf og einkunnir nemenda byggir hann á sínu mati, sjálfsmati hvers nemanda og samnemenda.

Hann fullyrðir að tæknibyltingin eigi eftir að breyta kennsluháttum á öllum skólastigum og eldri kynslóðin þurfi að aðlaga sig að því. Skólinn sé hins vegar mikilvægur félagslaga fyrir nemendur en hefðbundnir kennsluhættir þurfi að taka breytingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×