Þurfa að greiða 110 milljónir í veiðigjöld Höskuldur Kári Schram skrifar 1. júlí 2012 20:30
Sjávarútvegsfyrirtæki í Vesturbyggð þurfa að greiða hundrað og tíu milljónir í veiðigjöld á næsta ári. Framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Odda á Patreksfirði segir að fyrirtækið muni draga úr fjárfestingum til að mæta auknum útgjöldum. Sjávarútvegsfyrritækin munu greiða hátt í þrettán milljarða í veiðigjöld á næsta ári en frumvarp þess efnis var afgreitt á síðasta degi alþingis fyrir sumarfrí. Á sunnanverðum Vestfjörðum óttast margir þau áhrif sem veiðigjöldin kunna að hafa á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. jafnvel hefur verið talað fólksflótta og fjöldagjaldþrot í þessu samhengi. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, efast um að fyrirtækin í sveitarfélaginu ráði við slíka gjaldtöku. „Þau fyrirtæki sem eru burðarásinn í atvinnulífinu hér eru skuldsett og 110 milljónir í auknar álögur fyrir þau fyrirtæki eru bara mjög - er alltof mikið. Það bara gengur ekki upp," segir Ásthildur. Nú er búið að samþykkja þetta - getið þið brugðist við þessum með einhverjum hætti núna? „ja, þarf maður ekki að taka því eins og hverju öðru hundsbiti?" svarar Ásthildur. Sigurður Viggósson, framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Odda á Patreksfirði, tekur í sama streng. „Það er ekkert jákvætt við slíkt þegar er verið að setja aukaskatta á atvinnugrein, sérstaklega á stöðum eins og hér, frekar efnalítil svæði og þetta, og skatturinn nægilega hár hér sem ríkið tekur og við vitum allir að þessi skattur rennur til Reykjavíkur og hann fer ekki aftur til baka," segir Sigurður. Sigurður segir að fyrirtækið muni draga úr fjárfestingum. „Við munum ekki segja upp fólki. það verður það síðasta sem við gerum, allavega eins og málin standa núna en við munum draga úr fjárfestingum og leita að sparnaði að öðru leyti því að við vitum að þetta tekur dálítið í pyngjuna en við ætlum okkur að lifa af þessa, þessu nýju skatta," segir Sigurður.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Sjá meira