Innlent

Hvernig sem fer ætlar Ari að slá grasið á morgun

Ari Trausti ásamt eiginkonu sinni, Maríu Baldvinsdóttur.
Ari Trausti ásamt eiginkonu sinni, Maríu Baldvinsdóttur.
„Ég skynja það þannig að ég mun fá betri kosningu en kannanir sýna," segir Ari Trausti Guðmundsson forsetaframbjóðandi sem er bjartsýnn á gengi sitt í kosningunum í dag.

Hann fór ásamt konu sinni að kjósa í Grafarvoginum í morgun. Þau gengu í blíðunni að Íþróttmiðstöðinni og mættu vinsamlegu viðmóti borgarbúa, „þannig var fólk að heilsa okkur og ökumenn að flauta," segi Ari þegar hann lýsir skemmtilegum morgni í Grafarvoginum.

Ari hefur í nógu að snúast í dag, þannig er hann með kosningakaffi á Laugavegi 178, í Skaftfellingabúð, eins og það heitir víst. Svo stefnir hann á að halda kosningavöku á Hótel Borg í kvöld.

Spurður hvort baráttan hafi verið erfið, svara Ari Trausti neitandi. „Þetta hefur alls ekki verið erfiður tími heldur skemmtilegur. Það er mjög merkileg lífsreynsla að standa í þessu," segir hann og bætir við: „Ég hef ekki átt neinar svefnlausar nætur."

Ari viðurkennir hinsvegar að lífsreynslan hafi verið sérstök. „Ég nota orðið súrrealískt yfir þetta, enda skyndilega orðin opinber persóna. Það standa stundum á þér tíu spjót og það þarf svo að vinna úr því öllu saman," útskýrir Ari Trausti.

Spurður hvað hann ætli að gera á morgun, hvernig sem fer, svarar Ari: „Á morgun þarf ég að slá grasblettinn heima og svo þarf ég að fara með töluvert af dóti í endurvinnslu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×