Innlent

Betsson veðjar á íslenska hesta

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Veðmálasíðan betsson.com býður í fyrsta skipti uppá það að hægt sé að veðja til um úrslit á Landsmóti hestamanna. Um tvo flokka er að ræða en það eru stærstu viðburðir mótsins, A flokkur gæðinga og B flokkur gæðinga en úrslit fara fram á morgun sunnudag.

Áður hefur verið boðið uppá veðmál á hestamannamótum hér á landi, nú síðast á Melgerðismelum og ætlunin var að Fákur myndi hafa veðbanka á Landsmótinu nú en leyfi sem Fáksmenn áttu var runnið út og því varð ekkert úr þeim tilætlunum. Þekktur er áhugi fyrir veðreiðum víða erlendis og vakna upp spurningar hvort áhugi sá sé að hefja innreið sína til Íslands með tilkomu þess að erlenda veðmálasíðan Betsson sýni Landsmótinu þennan áhuga.

Hrímir frá Ósi er talinn sigurstranglegastur í B flokki gæðinga samkvæmt spám Betsson en í A flokki gæðinga er það Fláki frá Blesastöðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×