Innlent

Lýst eftir vitnum að árekstri

BBI skrifar
Óskað er eftir að vitni að árekstri sem varð um þrjú leytið í dag undir Arnarnesbrúnni gefi sig fram við lögreglu.

Svartur smábíll ók í veg fyrir græna Kia Carnival bifreið. Svarta bílnum var strax ekið brott af vettvangi eftir að hann lenti á framhorni grænu bifreiðarinnar, sem í kjölfarið hafnaði á vegarhandriði.

Að sögn voru vitni að atvikinu sem stoppuðu um stund en keyrðu svo burtu. Þau eru vinsamlega beðin að gefa sig fram við lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×