Innlent

Símenntun fyrir ungt fólk með geðraskanir

Í morgun var undirritaður samningur Námsflokka Reykjavíkur og Fjölmenntar og um fjölbreytta símenntun fyrir fatlaða, einkum fyrir ungt fólk með geðraskanir. Boðið verður upp á lengri og skemmri námskeið samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Með þessum samningi er stuðlað að framgangi þeirrar hugmyndafræði sem leggur áherslu á rétt fatlaðs fólks til allrar almennarar þjónustu samfélagsins.

Kennt verður í nýju húsnæði Námsflokka Reykjavíkur Suðurlandsbraut 32 sem hefur verið innréttað með það fyrir augum að þar fari fram fjölbreytt kennsla, ekki síst á sviði list- og verkgreina.

Samningurinn um símenntun fyrir fatlaða tekur gildi 1. ágúst 2012 og er til eins árs. Hann var undirritaður af Ragnari Þorsteinssyni, sviðsstjóra Skóla- og frístundasviðs og Bjarna Kristjánssyni formanni stjórnar Fjölmenntar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×