Innlent

Iceland Express ódýrastir

Annan mánuðinn í röð sýna verðkannanir fréttasíðunnar Túrista að fargjöld Iceland Express og WOW air til London lækka þegar nær dregur brottför. Farið til borgarinnar í viku 28 (9-15.júlí) er ódýrara í dag en það var fyrir átta vikum síðan hjá báðum félögum.

Það sama var upp á teningnum þegar borin voru saman fargjöld í viku 24 sem bókuð voru með fjögurra og tólf vikna fyrirvara.

Verðið hjá Icelandair í fyrri hluta júlí er lægra núna en það var fyrir tveimur mánuðum. Í síðustu könnun hafði farið tvöfaldast í verði þegar nær dró brottför. Breska lággjaldaflugfélagið EasyJet hækkar hins vegar farið hjá sér þegar nær líður samkvæmt síðustu tveimur mælingum Túrista. Félagið er mun dýrara en Iceland Express og WOW air í júlí.

Langódýrasta farið til London í viku 28 er með Iceland Express. Kostar það 29.800 krónur. WOW air rukkar 35.919 krónur en sætin hjá easyJet og Icelandair eru á rúmlega fimmtíu þúsund krónur ef bókað er í dag.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um málið á vef Túrista.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×