Innlent

Tæplega tíu þúsund sækja um í Háskóla Íslands

Tæplega 9.500 umsóknir um grunn- og framhaldsnám bárust Háskóla Íslands fyrir komandi haustmisseri. Það er fjölgun frá metárinu í fyrra þegar ríflega 9.200 umsóknir bárust skólanum samkvæmt tilkynningu frá skólanum. Ef horft er til ársins 2009 má sjá að umsóknum hefur fjölgað um rúm 40 prósent en þá voru þær um 6.800.

Tæplega 6.400 umsóknir um grunnnám bárust skólanum í ár og nemur fjölgun slíkra umsókna á milli ára tæpum fimm prósentum.

Þegar horft er til einstakra sviða Háskóla Íslands bárust flestar umsóknir um grunnnám á Hugvísindasviði eða 1.590. Þá sóttu 1.525 um grunnnám á Félagsvísindasviði, 1.441 á Heilbrigðisvísindasviði, 1.148 á Verkfræði- og náttúruvísindasviði og 659 á Menntavísindasviði. Samanlagt gera þetta 6.363 umsóknir um grunnnám á öllum sviðum háskólans en til samanburðar voru þær 6.078 í fyrra.

Umsóknir um framhaldsnám eru 3.122 og hafa þær ekki verið fleiri við Háskóla Íslands frá upphafi. Í fyrra voru umsóknirnar 3.022. Í meistaranámi og öðru námi á meistarastigi fjölgar umsóknum í meirihluta af 25 deildum skólans þótt fjölgunin sé mismikil.

Fyrr í mánuðinum var greint frá því að metfjöldi umsókna hefði einnig borist um skólavist í Háskólann í Reykjavík. Þegar umsóknarfrestur rann út á miðnætti þann 5. júní höfðu 2099 umsóknir um skólavist borist til Háskólans í Reykjavík. Það eru 22% fleiri umsóknir en bárust á sama tíma árið 2011 og 44% fleiri umsóknir um skólavist en bárust árið 2010. Þetta er ennfremur mesti fjöldi umsókna sem borist hefur fyrir nám á haustönn frá stofnun háskólans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×