Innlent

Festi krossarann - ætla að skoða málið eftir viku

Mynd tengist frétt ekki beint
Mynd tengist frétt ekki beint
Þrír Belgar á torfæruhjólum festu eitt hjóla sinna við Grettishæð á Stórasandi fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg tókst þeim ekki að losa hjólið þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir en gátu komið sér til byggða á hinum tveimur hjólunum og óskuðu eftir aðstoð björgunarsveita.

Í tilkynningu frá Landsbjörg var ákveðið að verða ekki við beiðni mannanna í samráði við lögregluna á Blönduósi og fjallskilanefndir. Landslag er viðkvæmt og mikil bleyta er í jörðu og því þótti ekki réttlætanlegt að reyna ná hjólinu upp - of mikil hætta væri á skemmdum á gróðri og jörðu. Skoða á málið eftir viku.

Lögregla tilkynnti ferðamönnunum niðurstöðuna og ætla þeir að breyta ferðaplani sínu næstu vikuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×