Innlent

Síðasti góðviðrisdagurinn í bili

BBI skrifar
Veðrið síðustu daga hefur verið með eindæmum gott.
Veðrið síðustu daga hefur verið með eindæmum gott.
Síðasti góðviðrisdagurinn í bili virðist vera í dag. Á morgun kólnar hressilega. Einnig er útlit fyrir úrkomu og jafnvel slyddu á hálendinu.

Dæmalaus blíða hefur leikið við Íslendinga að undanförnu. „Já, þessir síðustu dagar hafa verið sérlega góðir og óvenjulega heiðríkir," segir Einar Magnús Einarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Hann sér ekki fram á svipaðan kafla í bráð svo Íslendingar geta lagt sólgleraugun á hilluna í bili frá og með morgundeginum.

„Góða veðrið klárast í dag," segir Einar. Hitinn verður líklega í kringum frostmark á norðurlandi í nótt. Veðrið á höfuðborgarsvæðinu verður skárra en búast má við skýjuðu veðri með köflum og vætu næstu daga. Sérstaklega verður vætusamt á norð-austurlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×