Innlent

Vinnuvélarnar komnar í Kjálkafjörð

Kristján Már Unnarsson skrifar
Langþráð vegarlagning á sunnanverðum Vestfjörðum hófst í gær þegar Suðurverk mætti með fyrstu vinnuvélarnar í Kjálkafjörð. Þegar verkinu lýkur eftir þrjú ár styttast holóttir malarvegir milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur úr 53 kílómetrum niður í 29 kílómetra.

Þetta er langstærsta verk í vegagerð sem ráðist hefur verið í á Íslandi eftir hrun og mun kosta um þrjá milljarða króna. Vestfjarðavegur, milli Eiðis við Vattarfjörð og Þverár í Kjálkafirði, verður endurbyggður á 24 kílómetra kafla og styttur um 8 kílómetra með brúm og vegfyllingum yfir tvo firði, Kjálkafjörð og Mjóafjörð.

Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, segir að þessi fyrsta vika fari í að koma upp vinnubúðum en jarðvinna hefjist svo upp úr næstu helgi. Byrjað verði á að koma upp hafnaraðstöðu fyrir pramma sem flytja mun efni í vegfyllingar. Dofri býst við að 15-20 manns vinni á svæðinu í sumar en þeim fjölgi svo í 30 í haust og enn meira þegar brúarsmíði hefst á næsta ári.

Verktakinn var viðbúinn því að þurfa að gera hlé á verkinu vegna hafarnavarps. Til þess kemur ekki í ár, að sögn Magnúsar V. Jóhannssonar, svæðisstjóra Vegagerðarinnar, þar sem engir hafernir hafa orpið í vor nálægt vinnusvæðinu en tilskilin lágmarksfjarlægð frá hreiðri er 500 metrar.

"Við erum heppnir með þetta, áttum þó síður von á því í Kjálkafirði en frekar í Kerlingarfirði, en þar er heldur ekkert varp innan markanna," segir Magnús.

Vegagerðin hafnaði tilboði læstbjóðanda, Ingileifs Jónssonar, upp á 2.154 milljónir króna, þar sem hann var ekki talinn uppfylla kröfur útboðsins, en samdi í staðinn við Suðurverk, sem átti næstlægsta boð, upp á 2.487 milljónir króna.


Tengdar fréttir

Stærsta verk í vegagerð eftir hrun

Ingileifur Jónsson verktaki átti lægsta tilboð í þverun tveggja fjarða á Vestfjörðum, upp á rúma tvo milljarða króna. Þetta er stærsta verk sem Vegagerðin ræðst í eftir hrun.

Vegagerð innan við 10 prósent af því sem áður var

Samningar um nýframkvæmdir í vegagerð á Íslandi hafa undanfarin þrjú ár fallið niður í að vera innan við einn fimmti af því sem áður var að meðaltali og á síðasta ári voru þær innan við einn tíundi af því sem áður tíðkaðist, eða aðeins upp á 871 milljón króna, þegar meðaltalið var áður yfir 10 milljarðar króna á ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×