Vinnuvélarnar komnar í Kjálkafjörð Kristján Már Unnarsson skrifar 6. júní 2012 15:30
Langþráð vegarlagning á sunnanverðum Vestfjörðum hófst í gær þegar Suðurverk mætti með fyrstu vinnuvélarnar í Kjálkafjörð. Þegar verkinu lýkur eftir þrjú ár styttast holóttir malarvegir milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur úr 53 kílómetrum niður í 29 kílómetra. Þetta er langstærsta verk í vegagerð sem ráðist hefur verið í á Íslandi eftir hrun og mun kosta um þrjá milljarða króna. Vestfjarðavegur, milli Eiðis við Vattarfjörð og Þverár í Kjálkafirði, verður endurbyggður á 24 kílómetra kafla og styttur um 8 kílómetra með brúm og vegfyllingum yfir tvo firði, Kjálkafjörð og Mjóafjörð. Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, segir að þessi fyrsta vika fari í að koma upp vinnubúðum en jarðvinna hefjist svo upp úr næstu helgi. Byrjað verði á að koma upp hafnaraðstöðu fyrir pramma sem flytja mun efni í vegfyllingar. Dofri býst við að 15-20 manns vinni á svæðinu í sumar en þeim fjölgi svo í 30 í haust og enn meira þegar brúarsmíði hefst á næsta ári. Verktakinn var viðbúinn því að þurfa að gera hlé á verkinu vegna hafarnavarps. Til þess kemur ekki í ár, að sögn Magnúsar V. Jóhannssonar, svæðisstjóra Vegagerðarinnar, þar sem engir hafernir hafa orpið í vor nálægt vinnusvæðinu en tilskilin lágmarksfjarlægð frá hreiðri er 500 metrar. "Við erum heppnir með þetta, áttum þó síður von á því í Kjálkafirði en frekar í Kerlingarfirði, en þar er heldur ekkert varp innan markanna," segir Magnús. Vegagerðin hafnaði tilboði læstbjóðanda, Ingileifs Jónssonar, upp á 2.154 milljónir króna, þar sem hann var ekki talinn uppfylla kröfur útboðsins, en samdi í staðinn við Suðurverk, sem átti næstlægsta boð, upp á 2.487 milljónir króna.
Tengdar fréttir Stærsta verk í vegagerð eftir hrun Ingileifur Jónsson verktaki átti lægsta tilboð í þverun tveggja fjarða á Vestfjörðum, upp á rúma tvo milljarða króna. Þetta er stærsta verk sem Vegagerðin ræðst í eftir hrun. 27. mars 2012 19:13 Vegagerð innan við 10 prósent af því sem áður var Samningar um nýframkvæmdir í vegagerð á Íslandi hafa undanfarin þrjú ár fallið niður í að vera innan við einn fimmti af því sem áður var að meðaltali og á síðasta ári voru þær innan við einn tíundi af því sem áður tíðkaðist, eða aðeins upp á 871 milljón króna, þegar meðaltalið var áður yfir 10 milljarðar króna á ári. 20. febrúar 2012 19:28 Mest lesið Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Innlent „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Innlent Fleiri fréttir Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hafi tekið barnsmóður sína hálstaki Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Færri krakkar á samfélagsmiðlum en fleiri vingast við gervigreind Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Tæp fjórtán prósent þjóðarinnar búsett erlendis Netmiðlar myndu flestir liggja niðri á Íslandi Hættir í Samfylkingunni og gengur til liðs við nýjan flokk fyrir kosningar Skora á borgina að virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir „þrálátar deilur“ Óvíst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu Ók bifreið utan í þrjár aðrar á gatnamótum „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Sjá meira
Stærsta verk í vegagerð eftir hrun Ingileifur Jónsson verktaki átti lægsta tilboð í þverun tveggja fjarða á Vestfjörðum, upp á rúma tvo milljarða króna. Þetta er stærsta verk sem Vegagerðin ræðst í eftir hrun. 27. mars 2012 19:13
Vegagerð innan við 10 prósent af því sem áður var Samningar um nýframkvæmdir í vegagerð á Íslandi hafa undanfarin þrjú ár fallið niður í að vera innan við einn fimmti af því sem áður var að meðaltali og á síðasta ári voru þær innan við einn tíundi af því sem áður tíðkaðist, eða aðeins upp á 871 milljón króna, þegar meðaltalið var áður yfir 10 milljarðar króna á ári. 20. febrúar 2012 19:28